16. Janúar
Okay, svoldið síðan ég bloggaði síðast...
en það er nú ekki margt búið að gerast síðan þá! Nema að skólinn er náttlega byrjaður á fullu aftur og ég get ekki beðið eftir páskafríinu! Hehe nei,nei...
Held að þessi önn verði bara ágæt, dillidagarnir, árshátíðin of fleira skemmtilegt!
Við Hilma ætlum einmitt að skella okkur með í skíða og brettaferð með skólanum 27!
Helgin var að mestu eydd í að kúra bara og horfá tv-ið og nammiát!!
Á föstudaginn fór ég inná ak til læknis og kíkti aðeins á útsölurnar! Það var samt svo mikið fólk að maður gat nú lítið skoðað...fann mér samt eina peysu og bol!
Svo fórum við reyndar á rúntinn með Beggu á laugardagskvöldið, og það var rosa stuð..hlegið mikið!
Fór í mat í gær til Júlíu og Agnars Kára! Þau eru nebblega bara ein heima núna! Júlía gerði svona dýrindis pítsu..mm!!
Fórum a rifja smá upp frá því í “gamla” daga!!
*einmitt þegar titanic var sem vinsælust þá sko dírkaði ég DiCaprio og við vorum heima að hlusta á lagið úr myndinni...þá segir júlía við mig að hann hefði sko dáið í alvörunni!! Og ég fór að gráta...og hún lét mig gráta í smá stund og sagði svo “ég var sko bara að djóka” ...geðveikt fyndin
*svo laug hún líka í mér að hún væri komin með krabbamein í hausinn...og sagði svo að hún væri að djóka þegar það voru alveg að fara að koma tár!!
Hehe...hún er svo lúf og góð þessi elska...
*svo þegar ég fékk að vita að ég væri með mígreni líka..þá hringdi ég í júlíu og sagði henni að nú gætum við leikið! Agalega hress!!
En já, svo var OTH!! God hvað það var spennó!!...og haley missti ekki barnið!!
e-r sem laug því í mig samt...en var þetta síðasti þátturinn í seríunni eða??
...svoldið skrítinn endirinn og svo er the O.C að fara að byrja næsta mánudag..
Fór svo bara snemma að sofa í gær svo ég yrði hress í morgun, en nei...ég vaknaði klukkan 4 og var að deygja úr hálsbólgu, kvefi, hauverk og ógleði..
fór fram og fékk mér te og hunang..því ég ætlaði sko ekki að nenna að vera heima..en svo var ég líka með hita svo að ég ákvað að fara ekki í skólann..ég vinn þetta bara upp!!
Búin að horfa einmitt á 2 seríur af friends í dag..
Svo er Prison Break í kvöld!! Jeijj...
En já, ætla að fara að vinna bróðir minn í ótugt!!
Fyrsta sundferðin hans Agga!!

Laaang flottastar!!!....

Ég og Agnar ástin að kúra í gær;*
Þá er komið árið 2007..
Rosalega lýður tíminn hratt vá!!
Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt, leiðinlegt og sorglegt ár!
Strax í janúar fór ég suður til sálfræðings sem greindi mig lesblinda og með námserfiðleika, í leiðinni skoðuðuð við Finnur íbúðir og ég var rosa spennt að flytja suður! Fengum eina á freyjugötunni og ég ákváð að flytja strax mánuði seinna og prófa e-ð nýtt...
sem ég sé alls ekki eftir, það var ótrúlega skemmtilegt og lærdómsríkt!
Það voru líka ófáar ferðinrnar í smáralindina að fylgjast með ínu!
Tókum eitt djamm þarna og fórum á kaffi kósí og klæðskiptingurinn reyndi við Fannar þór!! Því geymi ég ekki!!!
Byrjaði að vinna í bakaríi og kynntist æðislegu fólki þar!
Páskana eiddi ég hérna heima á Hú og var FÁRveik allan tímann og Siggi frændi dó..
í mai ákváð ég að flytja aftur heim og fór að vinna í esso og svo á sölku!
Var að vinna flest alla daga sumarsins, þannig að ég gerði ekki mikið! Ég varð jú 18ára í júní og gerði ekkert skemmtilegt í samband við það..
síðan fór ég á þjóðhátíð í eyjum!!
Og Agnar Kári kom í heiminn! 

ákváð að drífa mig í skóla í ágúst og gekk það rosa vel!
Mikið um djamm á þeim tíma reyndir sem var BARA gaman!
Jólafríið búið að vera geggjað! Búin að sofa þvílíkt mikið og hafa það kósí! ...Gamlársdagurinn var líka snilld!!
þetta ár verður vonandi ennþá skemmtilegra...
Síðan í gær fórum við Júlía og Aggi til ak og fórum í sund! Fyrsta sundferðin hans Agnars!
Svo versluðuðum við aðeins og ég náði að finna mér Cintamani flíspeysu og stígvél!
Í gærkvöldi spiluðum við heima hjá Þórveigu, ég, Kittú, Hildur, Hilma og Júlía!
..það var líka fullt af kræsingum og spjallað mikið.. síðan fórum við allar á rúntinn á kagganum með Þórveigu!!
Verðum að gera þetta oftar!!
En segjum þetta gott!!
ætla að setja nokkrar myndir inn frá árinu..


fyrir sunnan..á leiðinni á kaffi kósí

HAHA 16 ára ball á sölku


Þarna vorum við að fara að brjótast inní partý til Brynjars eftir ballið..

í eyjum¨!!



Afmæli hjá Þórveigu..

ég og unnur fyrir sunnan líka..

Fimtudagskvöldið þegar snorri splæsti á opal flösku á bauksa!! það var bara snilld!:)

:)

á sálinni..

Við vinkonurnar núna um jólin ;)
Gleðileg jól**
Gleðileg jólin aftur**
það er búið að vera ótrúlega gaman núna yfir jólin! Á aðfangadag gerðum við allt það sem við gerum alltaf á þeim degi, en e-n komst ég aldrei í almennilegt jólaskap, kannski bara útaf því að það var einginn snjór
.. En ég komst sko alveg í stuðið þegar það átti að fara að opna pakkana! Fékk nú ekki marga pakka núna (maður er orðinn svo stór) hehe en ég fékk margt fallegt samt sem áður! 
Ég fékk allar sériurnar af friends á dvd !!!
bara draumur i dós!
Svo fékk ég líka 06.06.06 með bubba, peysu, bol, brók, gloss, ótrúlega sætt sem sylvía föndraði handa mér, dót í baðið, gegt fyndið spil, gjafakort og pening!
Held ég sé ekki að gleyma neinu!
svo á jóladag var ég bara heima á náttfötonum, horfá friends, sofa og spila!!
Svo um kvöldið var smá jólaboð hjá kollu frænku! Og það er eina jólaboðið sem ég hef farið í núna..vantar alveg gísla og öddu hingað til að hafa kakó!
En jæja...fer samt í eitt stórt á laugardaginn
Svo var náttlega ballið í fyrradag! Það var bara geggjað!
Byrjuðum heima hjá elís og júlía kom meirað segja með okkur á djammið! Það var ógó gaman!
Svo dönsuðum við bara og dönsuðum allt ballið..og ég er viss um að fólk hafi fengið borgað fyrir að stíga á lappirnar á mér! ég er öll bólgin og aum! Var einmitt í hvítum stígvélum sem voru orðin svört!
En þetta var samt bara gaman! Enduðum á því að fá okkur að borða hjá steina og guðmundi í bakaríinu!!
Ég er að hlaða inn myndonum af kvöldinu...tekur alveg ágætann tíma!!

vantar bara sylvíu**
en segjum þetta gott...

GLEÐILEG JÓL !!
ætla bara að óska ykkur gleðilegra jóla og hafið það ógeðslega gott!!
get ekki beðið eftir að fara í jólakjólinn og borða góðan mat!! svo er ég að hugsa um að fara ekkert úr náttbuxonum á jóladag! mm...elska jólin

ég nenni ekki að skrifa jólakort þetta árið...en takk samt fyrir mig !!

sjáumst annan í jólum á
sálin !!
ég þoli ekki ekki að vera andvaka!!!! oh! alveg óþolandi!
en já, allavega þá fórum við inná ak í gær á sálina í sjallanum!! og það var sko klikkað gaman!!
byrjuðum á því að bíða eftir að strákarnir myndu loksins koma...vorum bara heima hjá ömmu og afa Hilmu að sötra og spjalla!! svo fórum við í rottuholuna til strákanna
..það voru semsagt sveini, einar kerti!!, óli jakob og reynir! vorum ekki lengi þar þangað til sumir alveg þurftu að fara að drífa sig niður í sjallann svo við myndum fá miða..sveini borgaði leigubíl! hann á sko fullt af fjólubláum hehe!!
og svo voru svona fáir þegar við komum!! borgaði sig alveg að drífa okkur svona!!
svo var Hilma svo yndislega gáfuð að gleyma veskinu heima! og hún var ekki fljót að finna far...en þetta reddaðist!! svo dönsuðum við bara og dönsuðum...
og eftir ballið fórum við upp í partý hjá hljómsveitinni! drifum okkur svo bara heim í íbúð og ég get svo svarið það að við vorum svona 1 tíma að labba þetta!! vá hvað það var leiðinlegt!!
það kom e-r gaur úr hljómsveitinni með okkur..ég var búin að lofa honum geðveikt skemtilegu partýi og ægilegum græjum! (það er ekki græjur þarna) ég poppaði samt haha!!
já, svo fórum við bara að sofa e-ð um 7 leitið minnir mig!
það sem maður getur gert sig að fífli samt þegar maður er fullur!! hehe sylvía ég er svo stolt af því að eiga þig sem bestu vinkonu! hehehe
en núna ætla ég að klára að græsa myndirnar!! þær eru svoldið sjúskaðar reyndar..en ég nenni ekki að skrifa undir þær núna...ætla að reyna að sofna..vinna kl 9 í fyrramálið

Stebbi tók þessa!! það var sko gríðalegt stuð hjá okkur!!!!
koma svo...og kvitta !!
Jólafrí ....
Það er búið að vera ansi mikið að gera síðastu daga... búin að vera að vinna og fór í 3 próf!! Og mér gekk sko geggjað vel! Ég fékk sko 7, 8 og 9 í stæ!!
Á eftir að fá útúr einum áfanga ennþá!! Ég held ég hafi bara aldrei gegnið jafn vel í skóla...kannski afþví að þá vissi ég ekki að ég væri lesblind! Fólk hélt bara að ég væri svo heimsk,,,og ég farin að halda það sjálf!! En ég get þetta allavega!!
Er samt farin að kvíða svoldið fyrir næstu önn afþví að þá verð ég í miklu fleiri áföngum og meira en helmingi fleiri próf...en þetta reddast alltaf...nó um það...
ég er semsagt komin í jólafrí þangað til 8janúar
ég ætla samt að vinna eins mikið og ég get svo ég eignist nú e-a peninga!! Ég ætla að hafa það svo gott í fríinu! Sofa mikið, djamma og hafa það bara geggjað kósí!!
Langar samt að kíkja suður eftir áramótin..hitta Sylvíu, fara á KFC, vesturbæjarís, skreppa til keflavíkur...og versla smá föt fyrir gjafabréfið sem ég á í smáralind!! Sjáum til..held ég þurfi að fara til læknis þessa daga...
Ég var einmitt að koma frá famelíunni í laugarbrekkunni! Mér var boðið í svona dýrindis mat
svo spiluðum við matador...og ég vann ekki!! Svo þegar ég var að fara heim sá ég að það var smokkur á rúðuþurkonum !!! (hver ætli sé svona rosalega fyndinn) ...við júlía hlóum samt ekkert eðlilega af þessu!!!

Ég heyrði líka agnar kára hlægja í fyrsta skipti...ekkert smá krúttlegur kannski!!
En segjum þetta gott í bili...
Jólaluv**
;)
helgin var snilld eins og ég var búin að ákveða!! Palli var bara geggjaður!!! dísus hvað hann er svalur...og dansar flott aww
...dansaði af mér lappirnar, án gríns!
svo var rosa kósí náttlega í laufabrauði, horfðum líka á spólu með okkur frá því á spáni í fyrra! GOD hvað mig langar aftur núna strax
... svo var ingó þokkalega heitur líka!!!! og illa sveittir sumir á ballinu!! hehe.. Sveini og Einar reknir út hehehe
blóðug slagsmál í eftirpartýinu víst og svona!! kreisí!!!
ég hreinlega gleymdi að taka skemmtilegar myndir...var samt með myndavélina allan tímann sko...en jæja...næst
síðasti skóladagurinn var í dag og prófin bara eftir og svo jólafrí!! Jeijj get ekki beðið!
Var að setja inn 100 íslensk jólalög í tölvuna í dag...tók sinn tíma reyndar!! Geggjaður diskur!!
Agnar Kári er 4 mánaða í dag...!! vá hvað þetta er fljótt að líða...
Enda þetta með nokkrum myndum síðan um helgina..þarf að halda áfram að vinna..

ég og hilma sveittar á ball!!:)

Hilma Ósk sæta!!!

Hanna Jóna og Hilmz á rúntinum!!

Ég og Hanna Jóna

Selurinn mætti aftur!!:) haha

Hilma og Sveinbjörn Árni..

Ingó foxXy ;)

svo ein af mér og Agga í tilefni að hann á "afmæli" í dag...
helló...=)
ætla bara aðeins að láta vita af mér..ég er allavega lifandi..
skólinn alveg að verða búinn þessa önnina..!! vá hvað tíminn líður alltof hratt!! en já, síðasti skóladagurinn er á þriðjudaginn og þá verður bara kennt til hádegis..!! svo byrja prófin..ég reyndar bara fer í 3 próf!! (já eg veit) ég er svosum ekkert stressuð...ég er allvega ekki að fara að falla neitt núna!!!!
ég hlakka geggt til helgarinnar!!
ég fer í síðasta utn tímann minn á morgunn..tek síðasta prófið og þá er ég búin að fá 3einingar! hata samt þetta fag en jæja..
svo fer ég inn á ak með mömmu...þarf að fara til læknis og svo versla og gjellast
svo er Páll Óskar yndið mitt með disko um kvöldið og auðvitað ætla ég að skella mér!!! svo er laufabrauð hjá famelíunni okkar á laugardaginn og ball um kvöldið með ingó
ég ætla meirað segja að fá mér í glas þessa helgina..!! ef læknirinn lætur mig ekki fá fleiri töflur!!
...já, fór á bretti i fyrradag með unni og ernu og það var geggjað!!
datt bara nokkrum sinnum á hausinn! hehe en ég vona að snjórinn fari að koma allur aftur svo maður geti verið á bretti bara um jólin
hey...ég heyrði í fréttonum um daginn að það var kona sem var handtekin í bandaríkjonum fyrir að drepa 3mánaða barnið sitt með því að setja það inní ÖRBYLGJUOFN!!! hversu sjúkt er það ojj!!!
hún var ekki búin að játa en það benti allt til þess og inneflin í greyið barninu voru öll illa brunnin...hvernig er þetta hægt spyr ég nú bara...
en ég læt þetta gott í bili...kem með blogg eftir helgina og hver veit nema ég bursti rykið af myndavélinni minni og fari með hana út!!! hehe
endilega að kvitta** langar að vita hverjir skoða síðuna mína**
luvluv**
föstudagur...Nauðganir og refsingar!!
ég var að horfa á ísland í bítið í gær..og þar var verið að tala um refsingar fyrir nauðganir!einmitt á morgunn kl 4 er mótmælaganga á nokkrum stöðum á landinu. aðal samt í rvk.
persónulega verð ég alltaf reið þegar ég heiri dóma sem fólk fær fyrir að nauðga manneskju!
það var ein kona í þættinum í gær sem var nauðgað af fjölskylduvini frá 9-13ára aldri. á þessum aldri veit maður örglega ekkert hvernig maður á að bregðast við og veit ekkert hvað er að kæra!!
Hún kærði 9 árum seinna og kallinn fékk 2ár í fangelsi eða 2ár skilorðsbundin! náði þessu ekki alveg..

sem er alltof lítið!
Nauðgun er næsta skref við manndráp! þú eyðirleggur manneskjuna algjörlega að innan! sjálfstraustið fer í kássu og fólk verður yfirleitt þunglyndt eða jafnvel geðveikt!! Fólk þarf að takast á við þetta alla ævi! og er lengi að ná sér eftir þetta..en maðurinn fær ekki nema kannski 2ár í fangelsi og svo er hann kominn út í samfélagið aftur!!
Þetta líka verður til þess að konur jafnvel sleppa því að kæra! t.d árið 2003 voru 103nauðganir tilkinntar en aðeins 5 af þeim sakfelldar!! hvað segir þetta manni þá?...
Svo er maður dæmdur í árs fangelsi fyrir að panta sér mat í þrjá mánuði á ýmsum veitingahúsum í rvk en borgaði aldrei fyrir það!! og hvað þá að sjá alla sem fara í fangelsi fyrir að smigla dópi inní landið!! þetta er bara bull þetta réttarkerfi hérna!!!

jæja...ég varð að koma þessu frá mér!! endilega tjáið ykkur um ykkar skoðanir!!

ætla að enda þetta á smá jólaóskalista fyrir finn bróðir svo hann geti keypt e-ð fallegt handa mér fyrir sunnan!!**
góða helgi:*
ALLAR seríurnar með friends á dvd!
06.06.06 með Bubba !
nýja diskinn með Justin T. ;)
föt
Hárblásara
body shop- vanilla eða whit musk ylmvatn
Victoria secret body spray- love spell...mamma getur sýnt þér hvar þú getur fengið það!
góðan maskara frá Helena Rubinstain
Rúmföt
góðar dvd myndir!:)


